Leita í fréttum mbl.is

Bílastæði....

Ég lagði í gjaldskylt bílastæði í dag. Kostaði kr. 500 þeir klukkutímar sem ég þurfti. Fann ekki stæði annars staðar svo ég ákvað bara að spreða aðeins.

Ég lenti í stórskrítnum atburði þegar ég var að borga í stæðið.

Þegar ég er að koma að bílastæðagreiðsluvélinniWhistling er maður að koma frá henni og sest inn í bílinn sinn sem er lagt alveg við hana. Ég byrja að setja pening í, kemur þá ekki maðurinn út úr bílnum talandi um að hann hafi gleymt að taka miðann.

Það var enginn miði í vélinni og ég hafði bara byrjað að setja pening í þegar ég kom að henni. Tók ekkert eftir því hvort væri miði eða peningur í vélinni.  Maðurinn gerði sér lítið fyrir og ýtti á græna takkann til að fá miða. Halló, ég er að setja pening í. Ég varð smá reið og spurði hvað maðurinn væri eiginlega að gera, svo fauk miðinn sem kom þegar hann ýtti á takkann og ég þurfti að elta hann. Ekki bætti það úr skák. Ég spurði manninn hvað hann héldi að hann væri að gera og sagði að hann skuldaði mér 300 krónur. Miðinn sem kom út var til klukkan hálf fjögur ég þurfti til rúmlega fjögur.

Hann má nú eiga það þessi maður að hann borgaði mér 300 krónur og tók miðann. Ég setti pening í aftur og fékk miða sem rann út rúmlega hálf fimm. Þegar ég er svo að labba að bílnum mínum til að setja miðann í hann kemur maðurinn út úr bílnum og segir að miðinn sé til fjögur. Ég svaraði hátt og skýrt að hann væri bara til hálf og að ég þyrfti miða til rúmlega. Týpískur karlmaður.

Ég var frekar hneyksluð á þessum manni í morgun, en nú þykir mér þetta bara fyndið. Sérstaklega í ljósi þess að maðurinn jú borgaði mér peninginn sem ég var búin að setja í. Ég tek það fram að ef hann hefði ekki ýtt á takkann hefði ég látið hann hafa pening þar sem hann gleymdi að taka miða og það var peningur í vélinni þegar ég kom að.

Þangað til næst.... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
Ég er rauðhærð með krullur. Hef dútlað við hitt og þetta. Þykir gaman að elda góðan mat, lesa, horfa á góðar myndir og sjónvarpsþætti og leika við kisuna mína hann Snúð. Er hálfskrítin og stolt af því.

Spurt er....

Rottur eða kakkalakkar, hvort er verra?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 21038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband