Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Sjónvarp

Rockstar Supernova

Hann Magni var alveg frábær í þessari viku. Ekki var það nú heldur verra að rokkararnir báðu hann um að flytja lagið aftur á útsláttarkvöldinu. Þeim hafði fundist það svo frábært. Annars finnst mér Dilana góð en það er alveg spurning hvort hún nær að toppa Ring of Fire. Mér fannst sviðsframkoman hjá henni ekki nógu góð núna. Hún hefur svo rosalega útgeislun og frábæra rödd að hún þarf ekkert að vera út um allt svið. Mér fannst hún ekki ná sömu tengslum við áhorfendur og í síðustu viku. Ég get ekki beðið eftir að sjá hvað Magni og Dilana gera í næstu viku.

Þangað til næst....


Rockstar Supernova

Já hann Magni er bara að standa sig nokkuð vel. Hann er í hópi svona 5 manns sem mér finnst eiga heima á sviðinu. Annars er Dilana mín kona. Hún er alveg frábær. Það er kannski ekki að marka þar sem ég hef bara heyrt tvö lög með henni, en útfærslan á Ring of Fire var snilld. Ég fékk hreinlega gæsahúð við að hlusta á það og er enn með það á heilanum. Sofnaði með það í hausnum á mér í gærkvöldi.

Þangað til næst....


Betra seint en aldrei.

Loksins kláraði ég að horfa á Alias 4. Bíð bara spennt eftir Alias 5. Endirinn á 4 var mjög spennandi, ég verð nú bara að segja að mér brá allsvakalega við áreksturinn.

Eins og ég hef áður tekið fram þá er hann Arvin Sloane frábær, hann er svo yndislega vondur. Mér fannst alveg æðislegt þegar illi tvífari Sloane kom fram á sjónarsviðið. Hann þarf nú að vera ansi illur til að vera illi tvífari Sloan og það er hann nú.

Irina Derevko er á lífi. Aumingja Jack Bristow, hélt að hann hefði drepið hana til að bjarga Sydney því það leit út fyrir að Irina borgaði einhverjum til að drepa hana. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að leigumorðingjanum var borgað af reikningi á nafni Arvin Sloane. Jibbý, Sloane er vondur. Hann neitar allri sök. Við trúum honum auðvita ekki. Hann hefur sannað það svo oft hvað hann er undirförull. Hann var nú að segja satt greyið, sem kom í ljós þegar samstarfsmaður hans kom til að bera kennsl á hann sagði að Sloane væri Sloane en samt ekki. Þarna kom illi tvífari Sloane fram á sjónarsviðið.

Þessi samstarfsmaður Sloane klónsins, "The Sloane Clone" eins og liðið kallaði hann, hafði fyrst samband við Michael Vaughn með upplýsingar um pabba Vaughn sem Irina Derevko drap. Eða hvað? Hann fær Vaughn til að hjálpa sér við að ræna einhverju hátækni tæki í staðin fyrir upplýsingar um pabba hans, sem hann segir að sé á lífi. Neitar svo að láta hann hafa upplýsingarnar nema hann hjálpi honum meira. Það er að ræna eitthverju tengdu Rambaldi. Þarna dettur manni strax í hug Arvin Sloane. Nei það er bara klóninn. Hann er virkilega vondur. Ég hataði hann næstum því meira en alvöru Sloane. Ég hef elskað að hata Sloane frá byrjun.

Ekki má gleyma systrum hennar Irinu, frænkum Sydney og Nadiu. Þær eru sér á parti. Álíka vondar og Sloane ef ekki verri. Sérstaklega þá hún Elena Derevko eða Sophia Vargas eins og hún kallaði sig þegar hún bjó í Argentínu og þóttist vera að hjálpa Nadiu. Mér finnst hún reyndar vera alvöru vondur kall, ætlar sér heimsyfirráðum með geðveikislega illri áætlun. Æðislegt. Það tekst auðvita ekki, Sydney og Alias liðið bjarga heiminum með hjálp frá Arvin Sloane. Sydney er að reyna að taka Rambaldi tækið úr sambandi, þá kemur Nadia og reynir að drepa hana. Elena sprautaði Nadiu með menguðu vatni sem varð til þess að hún varð brjáluð. En hver kemur þá og bjargar deginum. Enginn annar en Arvin Sloane sem skýtur Nadiu til að bjarga Sydney sem nær þá að taka tækið úr sambandi á síðustu stundu. Húrra fyrir honum, ekki það að hann hafi ekki reynt að drepa Nadiu áður.

Það verður gaman að fá að vita hver hann Michael Vaughn er í Alias 5.


Uppáhaldið mitt ásamt fleiru.

Páskarnir yfirstaðnir, ég komst ekki yfir helminginn af því sem ég ætlaði að gera. Náði ekki að horfa á Alias, Angel, Buffy eða The X-Files. Var alltof upptekin við að búa til hálsfestar.

Ég horfði þó á The Triangle á Skjá Einum. Allt í lagi þættir. Endirinn ekki nógu góður, fannst hann frekar endaslepptur. Mér þykir samt alltaf gaman að því yfirnáttúrulega.

Ég er mikill aðdáandi Star Trek, þá sérstaklega Voyager. Þykja þeir þættir einna skemmtilegastir af Star Trek seríunum. Hef reyndar ekki séð alla Enterprise seríuna þannig að það getur breyst. The X-Files, Buffy the Vampire Slayer, Angel, Firefly, Charmed, C.S.I, Alias og Sex and the City eru líka í uppáhaldi. Það er alltaf gaman að geta tekið sér smá frí frá raunveruleikanum og týna sér í öðrum heimi. Draugar, djöflar, blóðsugur, önnur skrímsli, geimverur, og njósnarar þykir mér skemmtileg afþreying. Já ekki má gleyma Millenium, A Touch of Frost, Spooks, The Dead Zone, Stargate, Farscape og 24. Reyndar miseftirminnilegar seríur.

Bretarnir standa sig nú yfirleitt, ef ekki alltaf mjög vel. Þá sérstaklega þegar kemur að spennuþáttum. Mikið get ég nú verið tóm. Ég gleymi alveg honum Hercule Poirot. David Suchet er alveg æðislegur í því hlutverki þó svo að uppáhalds Poirot sé alltaf Peter Ustinov. Ég verð nú samt að viðurkenna að Peter Ustinov sem Svarskeggur Sjóræningi í Blackbeards Ghost þykir mér alltaf skemmtilegasta hlutverkið hans. Hann er frábær.

Verð að reyna klára að horfa á Alias 4!


Alias, Angel, Buffy og The X-Files.

Mikið er gott að vera komin í páskafrí. Ætla að klára að horfa á Alias 4, ef ég hef tíma þá ætla ég líka að horfa á valda þætti úr The X-Files, Angel og Buffy. Það eru þættir í seríunum sem eru algjör snilld.

Þeir sem þekkja til Joss Whedon ættu að vita hvað hann er mikill snillingur. Það var sagt að eina ástæðan fyrir að Buffy the Vampire Slayer væri svona vinsælir, væri að samtölin væru svo góð. Joss gerði sér lítið fyrir og gerði þátt þar sem allir í Sunnydale misstu röddina. Alveg frábær þáttur, með þeim bestu skrímslum sem ég hef séð. Herramennirnir eru frekar óhugnalegir.

Ekki má svo gleyma Firefly og Serenity úr smiðju Joss Whedon. Ég get horft aftur og aftur á Serenity. Hún er æðisleg. Persónurnar eru skemmtilega, fjölhæfar og frekar ruglaðar. Það væri gaman ef Firefly yrði endurvakinn. Þeir voru virkilega skemmtilegir.


Enn af Alias

Er búin að horfa á fyrstu þættina í Alias 4. Þeir eru alveg ágætir. Arvin Sloan stendur alltaf fyrir sínu. Hann er svo skemmtilega vondur og kemst nú yfirleitt upp með það. Ætla að reyna klára að horfa á Alias 4 um páskana. Það ætti að gefast tími í það þar sem þeir eru langir í ár.


Of mikil eftirvænting!

Ég varð fyrir vonbrigðum með síðustu 2 þættina í Alias 3. Mér fannst þeir missa flugið, ef svo má að orði komast. Hann Arvin Sloan getur greinilega ekki ákveðið sig hvort hann ætlar að vera vondur eða góður. Er með yfirlýsingar um hvað hann sé breyttur maður eftir að hann komst að því að hann ætti dóttur. Dælir svo í hana Rambaldi formúlunni en bjargar henni frá Sark og Lauren. Það er þó kannski hægt að segja að hann komi manni á óvart, maður veit eiginlega aldrei hvar maður hefur hann! Get alveg beðið með að sjá Alias 4. En horfi líklega á það á næstunni.  

Spennandi

Er að horfa á seríu 3 í Alias. Gafst upp á því að fylgjast með Alias í sjónvarpinu. Þegar maður fór að missa af einum og einum þætti, þá gekk þetta ekki lengur. Það er fínt að horfa á þetta á DVD. Ég á bara eftir síðustu 2 þættina í seríu 3, þátturinn sem ég horfði á í gær endaði á því að Arvin Sloan var að sprauta Nadiu með einhverri Rambaldi formúlu sem á að gera henni kleift að miðla þekkingu Rambaldi?! Það verður spennandi að sjá hvernig það fer.Í framhaldi ætla ég svo að horfa á seríu 4 þegar tími gefst.


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
Ég er rauðhærð með krullur. Hef dútlað við hitt og þetta. Þykir gaman að elda góðan mat, lesa, horfa á góðar myndir og sjónvarpsþætti og leika við kisuna mína hann Snúð. Er hálfskrítin og stolt af því.

Spurt er....

Rottur eða kakkalakkar, hvort er verra?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband