15.3.2008 | 17:31
Skartgripagerð....
Loksins, loksins er ég byrjuð aftur.
Í fyrra þegar Snúður kom til mín tæplega sjö vikna og pínu, pínulítill þá gekk ég frá öllum verkfærum, perlum, steinum og tilheyrandi inn í skáp. Í raun ekki hægt annað. Hann var og er reyndar enn alveg svakalega forvitin.
Mömmu vantaði skartgripi fyrir afmæli Dúkarafélagsins í febrúar þannig að ég tók allt fram aftur og bjó til festi og lokka handa henni. Mikið ofboðslega átti Snúður bágt. Hvað.. hvað.. handa mér hefði heyrst í honum ef hann gæti talað. Skemmtilegast þótti honum þegar ég var að þræða festina, hann hélt auðvita að hann ætti að eltast við þráðinn og það sem á honum var. Ég var orðin nett pirruð á honum greyinu. Farðu.. hviss.. nei.. hættu þessu vitleysingurinn þinn, var það eina sem hann heyrði frá mér. Þetta var fyrir þremur vikum.
Síðastliðna viku er ég búin að vera að vinna í að stytta festar, búa til eyrnalokka við festi og gera eina nýja festi. Það urðu smá slagsmál við Snúð sem enduðu á því að ég lokaði hann inni í íbúð hjá mér. Hann var ekkert smá ósáttur og fékk hurðin að finna fyrir því. krafs.. krafs.. krafs. Ég veit ekki hvernig þetta verður hjá mér í framtíðinni með þessa skartgripagerð. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að hann Snúður gleypi eitthvað af steinunum eða því sem ég er að vinna með og það standi í honum.
Ég verð eiginlega að koma mér upp vinnuaðstöðu sem Snúður kemst ekki að.
Þangað til næst....
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Dægurmál, Föndur, Gæludýr | Facebook
Spurt er....
Tenglar
Áhugamál
Ýmislegt sem ég hef áhuga á.
- Beaworks í Bretlandi Þaðan panta ég perlur og ýmislegt annað til skartgripagerðar
- Jewelry Supply Netverslun með perlur og ýmislegt til skartgripagerðar
Tölvuleikir
- World of Warcraft Heimasíðan fyrir hlutverkaleikin World of Warcraft..
- Thottbot Stuðningssíða fyrir World of Warcraft
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 21199
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- DVD
- Dægurmál
- Ferðalög
- Föndur
- Gæludýr
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Samviskan
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Gleðilega páska
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 21.3.2008 kl. 14:18
Guð blessi þig Gunnhildur margfaldlega í öllu þínu lífi og öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur, og Guð blessi fjölskyldu þína og ástvini í Jesú nafni
Guðrún Sæmundsdóttir, 25.3.2008 kl. 15:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.