25.4.2008 | 09:28
Ekkert nýtt af nálinni....
Ég var að hlusta á þetta, gat ekki heyrt neitt sem benti til að hún væri að "spauga".
Ég og mínir skólafélagar urðum fyrir barðinu á óprúttnum fréttamanni fyrir mörgum árum. Hann bjó til fréttir um hvað hverfið sem ég bjó í og skólinn sem ég var í væri fullt af ólátaseggjum, fyllibyttum og dópistum. Þessi "fréttaflutningur" skemmdi möguleika margra að komast í framhaldsskóla utan hverfisins.
Hann "tók" viðtal við dreng sem "slapp" úr þessum sora, í því kom fram að útskriftarárgangurinn (árgangurinn minn) og fyrrverandi skólafélagar drengsins væru fyllibyttur og dópistar, að hann hefði verið heppin að sleppa frá þessu lýð og fara í nýjan skóla. Þetta "viðtal" var birt í DV. Það kannaðist enginn af okkur (kennurum og nemendum) við að það hefði einhver hætt í skólanum þetta árið og fært sig í annan.
Hann fór í leiktækjasal og tók viðtöl við krakka sem virtust vera mestu ribbaldar. Það bjó enginn af þessum krökkum í hverfinu, hvað þá að það væri í skólanum mínum. Enginn leiktækjasalur í hverfinu.
Málið endaði þannig að "fréttamaðurinn" þurfti að biðjast afsökunar á þessum rógburð í sjónvarpinu. Ég var samt mörg ár á eftir að heyra fólk tala um hvað við hverfið væri hættulegt.
Það var nú ekki hættulegra en svo að þegar ég var að passa um helgar, þá labbaði ég ein heim um miðja nótt án þess að þurfa að hafa áhyggjur af neinu.
Þangað til næst....
Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Sjónvarp, Stjórnmál og samfélag, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 09:36 | Facebook
Spurt er....
Tenglar
Áhugamál
Ýmislegt sem ég hef áhuga á.
- Beaworks í Bretlandi Þaðan panta ég perlur og ýmislegt annað til skartgripagerðar
- Jewelry Supply Netverslun með perlur og ýmislegt til skartgripagerðar
Tölvuleikir
- World of Warcraft Heimasíðan fyrir hlutverkaleikin World of Warcraft..
- Thottbot Stuðningssíða fyrir World of Warcraft
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- DVD
- Dægurmál
- Ferðalög
- Föndur
- Gæludýr
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Samviskan
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Má ekki segja sjaldan fellur eplið langt frá eikini
Hannes Halldórsson (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.