15.6.2006 | 16:54
Íbúðin, orkuveitan og Knoll og Tott, eða Sigþór og Bergþór
Þegar ég kom heim var alveg búið að mála og meira en hálfnað að leggja parketið. Það lítur út fyrir að það verði klárað fyrir helgi. Jibbý. Eða, hæ hó og jibbý jei og jibbý jei það er verið að klára íbúðina. Svona í tilefni 17. júni. Vei, húrra, jíbbý........ég gæti haldið endalaust áfram.
En í aðra sálma. Mikið rosalega er ég ósátt við sjónvarpsauglýsinguna sem Orkuveitnan var að senda frá sér. Ég horfði á hana í alla í fyrsta skiptið sem ég sá hana. Var forvitinn hvað væri nú verið að auglýsa. En je minn eini. Úff. Þvílíkur og annar eins horror. Það er nóg að sjá hana einu sinni, nú skipti ég um stöð þegar hún birtist í sjónvarpinu. Til hvers var verið að búa þessa auglýsingu til og hvaðan kemur hugmyndin á bak við hana. Ég fattaði hana ekki. Ég viðukenni það að ég er kannski bara svona fattlaus. En fyrr má nú rota en steindrepa.
Og í en aðra sálma. Ég fór og passaði knoll og tott, eða Sigþór og Bergþór á þriðjudaginn eftir vinnu. Varð nú að hleypa Ragnhildi niður í bæ með tendgó. Við fórum í smá göngutúr, löbbuðum niður að túninu. Réttara sagt hlupu strákarnir og ég á eftir. Það var þvílíkt fjör. Ekki versnaði það þegar við löbbuðum framhjá brunahana. Ég sagði Sigþóri að þetta væri brunahani og þá byrjaði Bergþór, brunahani, brunahani, brunahani...... þið getið ímyndaði ykkur restina. Það var líka erfitt að fá þá til að halda áfram, þeir voru svo hrifnir af hananum. Við fengum okkur pylsur þegar við komum heim. Því er hægt að lýsa svona: Sigþór fékk pylsubrauð með sinnepi og smá tómatsósu á disk. Hann bað um skeið og borðaði tómatsósuna með skeiðinni. Namm. Berbþór fékk pylsu í brauði með tómatsósu. Borðaði bara pylsuna úr brauðinu, fékk tómatsósu á disk og heimtaði skeið svo hann gæti borðað tómatsósuna með henni. Hann borðaði reyndar afhýddar pylsur og var mjög duglegur. Sigþór borðaði hýðið af pylsunum en ekki pylsurnar sjálfar. Þangað til hann sá pylsurnar sem ég var búin að skera niður og setja á disk handa Bergþóri. Hann borðaði þær með bestu lyst, Bergþóri til mikillar skelfingar. Sem betur fer kom mamma við til að athuga hvort ég væri ekki örugglega á lífi þegar ég var að gefa þeim að borða. Ég get ekkert sagt um hvað hefði gerst ef Pálmey amma hefði ekki mætt á svæðið. Það gegnur yfirleitt mikið á hjá strákunum. Annars er hann Sigþór alger snillingur. Hann er Batman óður og var keyptur einhver Batman karl í Hagkaup á mánudaginn, þegar amma hans spurði hvort hann væri ekki með pening heyrist í honum. Gunnhildur er vinur minn. Ekki lengi að koma sér undan. Hann er rúmlega þriggja og hálfsárs. Við erum mikið að spá hvort hann hafi bara verið að skipta um umræðuefni eða viljað að ég yrði rukkuð fyrir Batman. Fyndið. Sigþór og Bergþór eru bara skemmtilegir!
Þangað til næst....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2006 | 11:09
Nýmálað
Málararnir voru komnir ansi langt þegar ég kom heim í gær. Það eina sem er eftir er stóri græni veggurinn. Verður reyndar ekki grænn áfram. Það er marmarahvítt á öllu nema stóra veggnum sem verður ljósljósbrúnn, liturinn heitir City og er mjög flottur. Það er rosalegur munur á íbúðinni. Hún er svo björt að hvíti liturinn sem var á henni stakk í augun. Ég tók reyndar ekki eftir því fyrr en hinn liturinn var komin á.
Svo er það bara parketið. Ég er að vona að það verði farið í það á morgun og klárað eins hratt og mögulega. Draumurinn er auðvita að komast til að ganga frá um helgina. Reyndar þarf að rakamæla gólfið því að eitthvað af vatninu sem lak fór örugglega í grunninn. Þannig að ef rakinn í gólfinu er of mikill verður ekki hægt að parketlegga strax. Ég er með krosslegða fingur, hendur, fætur og allt sem hægt er að krossleggja.
Þangað til næst....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2006 | 14:56
Árshátíðarhárgreiðslan
Auli get ég verið. Var bara að taka eftir færslunni í gestabókinni í sambandi við krullujárnsvesenið á árshátiðinni. En hvað get ég sagt. Þetta virkar fyrir mig og ef eitthvað er þá skána ég bara við það.
13.6.2006 | 14:48
Klór, klór og aftur klór.
Mér til mikillar ánægju var málarinn að sparsla þegar ég kom heim í gær. Gólfefnið hafði verið rifið af fyrr um daginn og allt gólfið sprautað með klór ógeðinu til að drepa það sem eftir lifði af sveppnum. Ekki glæsileg lyktin.
Málarinn náði í litaspjöld og ég var langt fram á kvöld að velta mér yfir litum. Gat nú samt ákveðið mig. Hann er líklega á fullu að mála núna og mér skildist að þeir (hann mæti með liðsauka í dag) ætluðu að klára á morgun. Þá þarf að drífa í að láta taka til parketið. Beykiparket, geðveikt flott. Og allt sem til þarf því að um leið og málararnir eru búnir verður komið og lagt á gólfið. Ég get varla beðið. Þá þarf maður að taka til hendinni og ganga frá öllu aftur á sinn stað. Annars held ég bara að það verði smá breytingar á skipulaginu. Þarf aðeins að hugsa það.
Er að fara passa skæruliðana á eftir, best að spara kraftana.
Þangað til næst....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2006 | 22:41
Glæný íbúð!
Búið að vera mikið að gera hjá mér um helgina.
Múrararnir komu á fimmtudaginn og múruðu í götin. Á föstudaginn kom einhver til að rífa af gólfinu. Því miður varð að senda hann heim þar sem ég vissi ekki af því að hann væri að koma. Dagurinn í gær og í dag fór í að pakka niður úr skápum og hillum svo hægt sé að færa húsgögnin til og rífa af gólfinu. Mjög þægilegt að búa í tvíbýli með mömmu og pabba, eins og ég hef komið inn á áður. Því sem ég kom ekki fyrir inni í svefnherbergi hjá mér fór í holið niðri hjá þeim sem er við hliðina á íbúðinni minni.
Á morgun verður rifið af gólfinu, svo koma málararnir. Þegar er búið að mála verður sett nýtt gólfefni. Það verður líklega parket. Nema ég finni eitthvað annað sem fer við flísarnar í forstofunni. Ég valdi nefnilega gólfefnið sem verður rifið af útfrá flísunum í forstofunni. Ég hefði viljað flísar á allt gólfið en þær eru ekki lengur til. Bummer!
Það verður samt gott að geta gengið frá öllu þegar þetta er búið. Komið sér almennilega fyrir.
Þangað til næst..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2006 | 19:11
Diet Coke í æð!
Ég fór í járngjöf í gær. Alltaf gaman að láta stinga sig og fá vökva í æð sem lítur út eins og kaffi. Annars segist ég alltaf vera að fá Diet Coke í æð. Ég er pínu kókisti. Ég er glæsilega marin. Fyrst var tekið blóð og svo fékk ég "diet coke" dreypið. Gaman, gaman. Sama og venjulega.
Fékk pínu sjokk þegar ég byrjaði að lesa um brunan á Fuertaventura hérna á mbl.is þar sem foreldrar mínir eru þar í fríi. Þau vissu ekki einu sinni af brunanum þegar ég hringdi til að athuga hvernig væri hjá þeim. Eru víst hinum megin á eynni.
Fór í Smáralindina í dag. National Geographic var til í Office One. Ég var snögg að kaupa það. Ég á Fjólu ömmu heitinni það að þakka hvað mér þykir gaman af blaðinu. Hún átti stórt safn af þeim og var áskrifandi ef ég man rétt. Eitt af því skemmtilegasta sem ég gerði þegar ég fór norður í heimsókn var að fara inn í saumaherbergið hennar þar sem blöðin voru geymd og gleyma mér við að skoða myndirnar í þeim. Fjóla amma var einstök kona og hennar er sárt saknað.
Ég álpaðist inn í The Body Shop, þar er verið að selja UNIFEM armbandið á 500 krónur. Ég keypti auðvita eitt. Mjög verðugur málstaður.
Best að athuga hvernig maturinn hefur það, þarf að senda einhvern til að kaupa franskar.
Þangað til næst....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2006 | 16:52
Heimsendingaþjónusta!
Pantanir eru teknar í gegnum síma með sólarhringsfyrirvara.
Hmm. Ætli Anna muni hvað ég á af myndum. Ég veit þó að hryllingsmyndir eru ekki á dagskrá hjá henni. Ég sé þetta alveg fyrir mér. Ég í símanum að telja upp titla og hún "já" "nei" "búin að sjá hana" Það verður nú samt ódýrara símtal en þegar hundurinn fékk í eyrun þegar fjölskyldan var í Egyptalandi. Því símtali verður seint gleymt og ég er viss um að karlinn sem heyrði minn hluta símtalsins talar enn um það. Fjölskyldan mín er skemmtilega rugluð. Ég viðurkenni það fúslega að ég er með rugluna á háu stigi. Best að skipta um umræðuefni.
Það er augljóst að ég bý á Íslandi. Veðrið alveg eins og við má búast hér á landi. Ég var að vona að veðurfræðingarnir okkar myndu nú spá almennilegu veðri. En, ég bý á Íslandi. Ég verð bara að reyna flýja land, hvernær sem það svo verður.
Annars á ég nú ekkert að vera skammast út í veðráttuna hérna því að eftir þriggja mánaða dvöl í Kaliforniu, þar sem veðrið var nánast alltaf eins, varð ég himinlifandi ef kom smá óveður. Brjáluð rigning og hvassviðri. Það rignir þannig að maður rennblotnar á innan við hálfri mínútu. Mér fannst það æðislegt. Saknaði veðráttunar á Íslandi alveg ógurlega.
Man einhver eftir manneskjunni með rugluna.
28.5.2006 | 17:13
Það sem á daga mína hefur drifið.
Mikið er ég orðin langþreytt á þessu drasli sem er í íbúðinni. Það fer nú samt vonandi eitthvað að gerast þar sem ég hef ekki séð litla rakablettinn sem var alltaf í horninu í tvo daga. Það geta verið tvær ástæður fyrir því. Það er hætt að leka og þurrktækið er búið að þurrka upp allan rakan eða það er svo lítil notkun á vatni uppi að þurrktækið nær að þurrka nóg. Blablabla. Það kemur víst allt í ljós. Ég er ekkert hrikalega bjartsýn.
Ég er líka í pilskasti. Alltaf að sauma pils. Það er nú líka komið sumar, þrátt fyrir kuldakast og leiðindarveður. Ég keypti efni í rúmfatalagernum sem lítur út eins og flauel eða rúskinn, er enn að sníða það. Ég er nefnilega ennþá að hugsa hvernig pilsið á að vera. Ég er eiginlega búin að ákveða hvernig ég geng frá mittinu. Það verður líklega svona "one size fits all" dæmi bundið í mittið. Ef það kemur ekki nógu vel út þá verður bara sett teygja.
Frænka mín kom með myndirnar sem ég lánaði henni einhverntíman í mars í gær. Hún hafði þó getað horft á þær allar. Þetta voru 11 bíómyndir og öll Sex and the City serían. Þegar hún var farinn dreif ég mig og kaus. Ég var nú samt eiginlega búin að ákveða að kjósa ekki. Sumir ættu að vera ánægðir yfir því að ég lét mig hafa það að kjósa.
Best að hætta þessu þvaðri. Halda áfram að sníða og sauma.
P.S. Mamma þið verðir bara að flytja niður þegar þið komið heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.5.2006 | 15:22
Mikið gaman.............eða hvað!
Loksins komin í samband. Hef ekki komist í tölvuna.
Ég ætlaði að vera svo duglega og segja frá hvað mér fannst um Da Vinci lykilinn. Fyrirlesturinn á undan myndinni var stuttur og fróðlegur. Myndin fannst mér alveg fín. Mér fannst hárið á honum Tom Hanks bara mjög fínt, viðeigandi fyrir persónuna!!!
Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki alveg normal, elti ekki fjöldan. Venjan er að fólk fái sér rakatæki, það á að hreinsa loftið á heimilinu og bæta öndun! Ég er með risastórt þurrktæki inni í eldhúsi hjá mér. Rakatæki er humidifier á ensku, þetta ferlíki er merkt DEHUMIDIFIER, s.s. þurrktæki. Það er búið að vera í gangi frá því á mánudaginn með smá næturhvíld, það er ekki hljóðlátt. Fyrir þá sem hafa ekki komið í sundhöllina í langan tíma endilega komið í heimsókn. Það var eins og að koma í sundhöllina í den að koma inn í íbúð.
Fyrir þá sem ekki skilja þá er eldhúsið í rúst. Það lekur einhverstaðar. Gat í veggjunum þar sem vatnslagnirnar eru og eitthvað stykki úr ferlíkinu ofan í einhverju röri til að þurrka upp raka. Við neituðum að fá hitablásara þar sem þá hefði orðið stórslys. Ég hefði líklega klórað af mér skinnið. Fimmtudag, föstudag og sunnudag var ég alveg friðlaus. Lá upp í rúmi þegar ég var að fara að sofa og klæjaði eins og hundrað manns. Það er skýringin á sundhallarstemmingunni. Strax og tryggingaliðið heyrði af kláðanumá mánudeginum kom maðurinn sem spreyjaði fyrst og spreyjaði meira, mikið meira en fyrst því lyktin er ekki enn farinn. Tekur þetta engan enda!?
Þar sem ég er búin að koma mér fyrir uppi í bili ákvað ég að horfa aftur á Star Trek: Voyager. Ég er að sauma mér pils og horfi með öðru auganu á Star Trek.
Ég verð nú líka að taka það fram að það er alveg ágætt að búa í tvíbýlishúsi með foreldrum sínum. Það hefur allavega bjargað mér núna. Þau flúðu land, fóru til útlanda í sumarfrí eins og við Íslendingar köllum það, þannig að ég hef sofið í þeirra herbergi. Kláðinn kemur ef ég er of lengi í íbúðinni, eins og núna.
Best að hætta á meðan eitthvað skinn er eftir...........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2006 | 19:42
Glaðningur.....
Það kom skemmtilegur póstur inn um lúguna í dag. Bréf frá Landsbankanum með tveimur boðsmiðum á Da Vinci lykilin. Hmmm, hverjum á ég að bjóða. Mömmu langar alveg rosalega að sjá myndina en hún verður að vinna. Ég bauð pabba. Hann er alveg ótrúlegur. Ha hva, hvernær hvar.....ef ég verð ekki að vinna.....ég ætti ekki að vera vinna! Fékk hann til að segja já á endanum. Ég vona allavega að ég verði ekki að hringja í einhver á síðustu stundu eða fara ein. Pabbi minn er mjög sérstakur. Það vita reyndar allir sem hann þekkja. Hlakka nú samt til að sjá myndina. Fyrir sýninguna heldur Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur fyrirlestur. Vona að það verði skemmtilegt og fræðandi.
Evróvision kallar....
Spurt er....
Tenglar
Áhugamál
Ýmislegt sem ég hef áhuga á.
- Beaworks í Bretlandi Þaðan panta ég perlur og ýmislegt annað til skartgripagerðar
- Jewelry Supply Netverslun með perlur og ýmislegt til skartgripagerðar
Tölvuleikir
- World of Warcraft Heimasíðan fyrir hlutverkaleikin World of Warcraft..
- Thottbot Stuðningssíða fyrir World of Warcraft
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 21268
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- DVD
- Dægurmál
- Ferðalög
- Föndur
- Gæludýr
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Samviskan
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði