Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
28.9.2007 | 11:22
Eftirlýstur....
Ég lýsi hér með eftir mánudeginum.
Á þriðjudaginn fannst mér vera mánudagur, fattaði á miðvikudeginum að það væri í raun miðvikudagur en ekki þriðjudagur. En viti menn í gær fannst mér samt vera miðvikudagur. Ég var búin að vera um 2 tíma í vinnunni þegar ég fattaði að það væri fimmtudagur. Er nú samt alveg með það á hreinu að það er föstudagur í dag.
Hvað varð þá eiginlega um mánudaginn. Það eru nokkrar mögulegar útskýringar á hvarfi hans.
Ég gekk í svefni allan daginn.
Ég er viss um að ég gekk ekki í svefni þar sem ég get ómögulega keyrt í vinnuna í morgunumferðinni í Reykjavík sofandi. Maður þarf sko að vera vakandi og rúmlega það.
Mér var rænt af geimverum.
Ég get ekki ímyndað mér að einhverjar geimverur hafi áhuga á að skoða mig. Mér þykir líka frekar ólíklegt að fólki sé rænt af geimverum. Við erum svo miklir villimenn að það er varla mikið hægt að læra af okkur.
Mánudagurinn var felldur niður í þessari viku.
Ég tel víst að ég hafi misst af fundinum þar sem ákveðið var að sleppa mánudeginum í þessari viku.
En ef einhver veit hvað varð af mánudeginum endilega látið mig vita.
Þangað til næst....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.9.2007 | 15:47
Athugasemdir....
Mest spennandi og skemmtilegasta lesningin á blogginu er umræðan sem verður til í athugasemdum vegna færsla sem skrifaðar eru af fólki sem hefur stórfurðulegar og misvinsælar skoðanir á hinum og þessum málum. Innihaldið er nú of ekki upp á marga fiska.
Munnsöfnuðurinn í sumum er eins og á verstu sjómönnum . Ekkert að því að koma með nokkur blótsyrði endrum og eins. Reyndar þegar ég les færslur eða athugasemdir með djö..., helv..., ands... í fjórða hverju orði sé ég bloggarann í anda hamrandi á lyklaborðið hjá sér með offorsi og þurfa svo að skreppa í tölvubúð til að kaupa sér nýtt lyklaborð.
Notið PÚKANN. Stafsetningavillur eru óþarfi en geta verið ansi fyndnar. Ég meina maður hefur nú lesið blogg sem er eins og stafarugl.
Reynið nú að koma skoðunum ykkar almennilega frá ykkur, að minnsta kosti þannig að maður skilji þær og fái nú ekki hausverk af lesningunni.
Ég hef fengið hausverk á því að lesa færslur/athugasemdir hjá sumum. Sem dæmi er þessi svakalega umræða sem hefur orðið vegna færslu hjá aðila sem heldur því fram að hvíti maðurinn sé efstur á fæðukeðjunni. Skil það reyndar ekki þar sem við mannfólkið, allavega flest, erum ekki mannætur. Ég skildi ekki meirihlutann af því sem hann skrifaði inn á athugasemdirnar hjá henni Jenný og fékk bara hausverk á því að reyna lesa þetta aftur. Datt helst í hug að hann væri ekki Íslendingur.
Öll umræða er af hinu góða, sérstaklega þar sem við erum ekki öll sammála um allt.
Þangað til næst....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.9.2007 | 15:57
Fleiri svona fréttir....
Já, aumingja maðurinn að fá ekki svefnfrið fyrir brjáluðum slagsmálaköttum . Mér finnst þessi frétt alveg frábær. Vantar fleiri svona skemmtilegar fréttir í fjölmiðla.
Maður verður eiginlega bara þunglyndur við að fylgjast með flestum fréttum fjölmiðlana.
Þessi frétt og fréttin um gæsastegginn sem tók að sér andarunga í sumar eru bestu fréttir sem ég hef séð í ár.
Þangað til næst....
Lögreglan stöðvar kattaslag um miðja nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2007 | 16:03
Stupid criminals....það er ykkar að dæma
For two Northeastern freshmen, school year begins and ends with arrest
A pair of freshmen at Northeastern University learned a tough lesson before classes even started this semester, when one of them allegedly leaned out the window of his dormitory and yelled something regrettable in earshot of plainclothes police officers.
"If you're looking for weed, my roommate Ferrante has some for sale," Michael R. Emery yelled, according to a release issued today by the Suffolk district attorney's office.
The sales pitch, made Sunday to a fellow student out a second-floor window at the Hemenway Street residence hall, got Emery, 18, and his roommate, Matthew J. Ferrante, 18, in a lot of trouble. After their room was searched and officers found a bevy of marijuana, smoking accessories and liquor, the pair was arrested, arraigned, and apparently thrown out of school.
"I can tell you that they are no longer students here at Northeastern," said Laura Shea, a school spokeswoman, who declined to comment further.
According to the release from prosecutors, police went to the second floor of the dormitory after hearing Emery yell and found the door open. In plain view was a bottle of Grey Goose vodka, a shot glass, and a plastic baggie of marijuana. The officers knocked and identified themselves to Emery, of Haverhill, and Ferrante, of North Andover.
As they spoke to the teens, police spotted another bag of marijuana and a glass pipe. The officers read the students their rights and received permission to search the room, according to the release. The search yielded eight small bags of marijuana, a larger bag containing three to four ounces of marijuana, hundreds of clear plastic baggies, and a Triton T2 digital scale. The officers also found a grinder, a bong, $1,045 in cash, bottles of Malibu rum, Smirnoff Twist raspberry vodka, and Southern Comfort, and a vaporizer, a device that uses heat to release marijuana's intoxicating chemicals but does not burn the plant.
Outside the window of their room, the students had rigged a pulley system that had been designed to raise and lower items from the room directly overhead. It was not immediately how the students were using the pulley system, prosecutors said.
Emery and Ferrante were arraigned Tuesday in Roxbury District Court and charged with possession of a class D substance with intent to distribute in a school zone, possession of alcohol by a minor, and conspiracy to violate the state's drug laws. The teens were released without bail and are scheduled to return to court Oct. 24.
A message left at Emery's parents home was not returned. Reached by phone today at his parents home in North Andover, Ferrante said: "I do not want to talk about it."
Þangað til næst....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2007 | 07:20
Ný vekjaraklukka....
....hún er á fjórum fótum og heitir Snúður.
Hann vakti mig áðan. Ég vissi að klukkan var ekki orðin 8 þar sem ég stillti gömlu vekjaraklukkuna mína á átta. Þegar hann var hættur að kúra ofaná mér gáði ég hvað klukkan var. Hann hefur vakið mig klukkan 6:30. Ég bölvaði World Class fyrir að opna ekki fyrr en klukkan 8 á laugardögum. Fór bara framúr þar sem ég er glaðvöknuð. Venjulega get ég sofnað aftur, sérstaklega ef ég vakna svona snemma. Ekki núna sem er ágætt þar sem ég er að fara í ræktina á eftir.
Ég sit núna og hlusta á vatnið renna í eldhúsvaskinn. Heyri að Snúður er að fá sér að drekka. Hann drekkur vatnið beint úr krananum. Vatnið sem ég set hjá honum er víst ekki nógu ferskt.
Það er nú samt ágætt. Snúður og ég pössum vel saman. Bæði stórfurðuleg.
Þangað til næst....
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Spurt er....
Tenglar
Áhugamál
Ýmislegt sem ég hef áhuga á.
- Beaworks í Bretlandi Þaðan panta ég perlur og ýmislegt annað til skartgripagerðar
- Jewelry Supply Netverslun með perlur og ýmislegt til skartgripagerðar
Tölvuleikir
- World of Warcraft Heimasíðan fyrir hlutverkaleikin World of Warcraft..
- Thottbot Stuðningssíða fyrir World of Warcraft
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- DVD
- Dægurmál
- Ferðalög
- Föndur
- Gæludýr
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Samviskan
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði